Hrafn Loftsson

Boltinn

Ég fékk snemma áhuga á fótbolta í Neðra-Breiðholti. Byrjaði hjá ÍR og æfði þar til 12 ára aldurs. Eftir flutning fjölskyldunnar niður í Hlíðar hætti ég að æfa en tók svo fram skóna á ný um 19 ára aldur og spilaði með ÍR í 4. og 3. deild.

Ég varð Íslandsmeistari með ÍR í 4. deild árið 1984 og Íslandsmeistari með ÍR "Old boys" árið 1995.

Árið 1986 gekk ég til liðs við Knattspyrnudeild Skotfélags Reykjavíkur og spilaði með henni til ársins 1989.

Í enska boltanum styð ég auðvitað Liverpool og í íslenska boltanum Fram (og í seinni tíð Fjölni).