Ég er kvæntur Guðnýju Eysteinsdóttur, myndlistarkonu. Hægt er að sjá sýnishorn af myndum Guðnýjar á www.gny.is.
Sonur okkar heitir Hilmir, fæddur 2001. Hann virðist ætla að erfa áhugamál föður síns, æfir fótbolta og skák hjá Fjölni og golf hjá GR.
Guðný á eina dóttur, Guðrúnu Jóhönnu Þórðardóttur, af fyrra sambandi. Guðrún er gift Agnari Hermannssyni og þau eiga þrjú börn, Dagnýju Lind (fædd 2004), Elmar Bjarka (fæddur 2008) og Kötlu Björk (fædd 2010).
Ég er fæddur í Reykjavík 1965, sonur Lofts Guttormssonar og Hönnu Kristínar Stefánsdóttur.
Systkynin mín eru Arnaldur Loftsson (fæddur 1970) og Hanna Loftsdóttir (fædd 1977).