Hrafn Loftsson

Golfið

Ég sló mitt fyrsta golfhögg þegar ég var við nám í Pennsylvaniu 1991. Þegar ég kom heim til Íslands árið 1995 þá dró ég nokkra félaga út á golfvöll og eftir það var ekki aftur snúið.

Golfhópurinn naloH var stofnaður árið 1996. Hópurinn samanstendur af 20 brjálæðingum sem allir eru meðlimir í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR).

Stór hluti af lífinu snýst nú um golf enda erum við bæði hjónin sýkt af golfbakteríunni. Forgjöfin mín er nú um 8 og Guðnýjar um 17.